Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Orðin hrædd

Hörmuleg eru slysin ég fæ alltaf gæsahúð þegar ég heyri um bíl slysin. Ég hef keyrt á milli Þingeyrar og Reykjavíkur tvisvar á ári stundum þrisvar og hef reynt að leggja af stað eldsnemma að morgni, stundum kl.05:00 til að forðast mikla umferð, en núna er svo komið að maður er farin að hugsa "af hverju flýg ég bara ekki" (hef alltaf verið skíthrædd að fljúga) í staðin fyrir að keyra. Ég viðurkenni að ég er orðin ansi hrædd við að keyra á milli út af þessum mörgu hörmulegu slysum undanfarin ár. Ég verð að fara suður á mánudagsmorgun og það hefur komið upp í mínum kannski skrítna kolli að best sé að leggja af stað á miðnætti eða kl. 02:00 og vera komin kl.08:00 til að mæta ekki bíl, kannski er þetta bara vitleysa í manni en svona er þetta bara orðið hjá mér, ég er kannski bara skrítin skrúfa.
mbl.is Enn í lífshættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúður

Fatta ekki þessa bloggsíðu, er búin að reyna að koma inn bloggi núna í einn klukkutíma og ég fæ alltaf að það sé birt en ég hef ekki séð það ennþá þegar ég er að prufa þetta, þetta hefur aldrei gengið svona á bloggar, þar er mjög einfalt og gott kerfi.

Frí

Jæja þá er ég loksins að fara að sigla inn í mitt langþráða sumarfrí, bara dagurinn á morgun og sunnudagurinn eftir Happy svo ætlum við Hannes að skreppa suður í borg óttans eins og Reykjavík er kölluð í dag Frown. Það er nú ýmislegt sem við Hannes ætlum að gera í bænum eins og t.d. að fara í bíó, heimsókn, kaffihús og svo að sjálfsögðu að þræða verslanirnar, ábyggilega hægt að gera góð kaup á útsölunum. Ég þarf nú líka að fara til augnlæknis af því að ég er að fá fjærsýni með nærsýninni og það er eitt heljarinnar vesen skal ég segja ykkur. Nú fer ég að tína aðalbláberin og selja út um allt land það verður bara gaman að vera upp um allar hlíðar í Dýrafirðinum fallega.


Maðurinn

Jæja þá er þetta eitthvað að ganga hjá mér, bíðið þangað til ég set myndirnar inn það verður nú meiri klúðrið. Agalega vorkenni ég manninum sem gekk á Esjuna í gær og er nú látinn það hefur greynilega verið eitthvað að honum og aumingja fólkið hans þegar það hefur fengið fregnirnar að láti hans en svona er þetta bara, þegar ég heyrði fréttina þá fór ég að hlægja en svo áttaði ég mig á að það væri ekki í lagi með manninn að þetta væri ekkert  djók, alla vega er það mín skoðun á málinu.

Nenni ekki

Ætla að sofa á þessu í nótt, búin að rugla öllu.


Í vinnslu

Þessi blessaða síða er í vinnslu, það tekur mig ábyggilega einhvern tíma að átta mig á þessu ég er svo vön stjórnborðinu á bloggar  Blush  en þetta kemur fyrir rest Wink .

Meira um mig

Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir

Ég á heima á Þingeyrinni fögru við Dýrafjörðinn fagra . Hin síðan mín. http://betri-heilsa.bloggar.is

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband