26.7.2008 | 16:12
Orðin hrædd
Hörmuleg eru slysin ég fæ alltaf gæsahúð þegar ég heyri um bíl slysin. Ég hef keyrt á milli Þingeyrar og Reykjavíkur tvisvar á ári stundum þrisvar og hef reynt að leggja af stað eldsnemma að morgni, stundum kl.05:00 til að forðast mikla umferð, en núna er svo komið að maður er farin að hugsa "af hverju flýg ég bara ekki" (hef alltaf verið skíthrædd að fljúga) í staðin fyrir að keyra. Ég viðurkenni að ég er orðin ansi hrædd við að keyra á milli út af þessum mörgu hörmulegu slysum undanfarin ár. Ég verð að fara suður á mánudagsmorgun og það hefur komið upp í mínum kannski skrítna kolli að best sé að leggja af stað á miðnætti eða kl. 02:00 og vera komin kl.08:00 til að mæta ekki bíl, kannski er þetta bara vitleysa í manni en svona er þetta bara orðið hjá mér, ég er kannski bara skrítin skrúfa.
Enn í lífshættu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
Tenglar
Bloggarar
Hin síðan mín
Ýmsar vefslóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svona er þetta nú bara, umferðin er farin að einkennast um of af þessum þáttum sem hafa orðið meira og meira áberandi í fari fólks síðustu árin: Frekju, yfirgangi og tillitssemi. Manni líður stundum eins og dauðadæmdum manni á aftökustað þegar ferðast er um Suðurlands-og Vesturlandsvegi á annatímum - líf fólks virðist hreinlega hanga á bláþræði á þessum vegarköflum.
Tek undir þetta, sem nefnt er í haus síðunnar, um fegurð Dýrafjarðar, sem er einn fallegasti fjörður landsins. Og svona í leiðinni - annar ámóta fallegur fjörður er Álftafjörðurinn. Heppinn er ég að vera uppalinn milli þessarra tveggja staða!
Gunnar Th. (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 11:11
Sæll, á hvaða stað ólst þú upp og skyldi ég eitthvað kannast við þig? aldrei að vita heimurinn er lítill í dag .
Guðrún (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 13:15
Bifvélav.m. Fæddur ´57 og uppalinn á Ísafirði. Yfirgaf sæluna ´99. Var lengst af í Vélsm. Þór hf., fyrst á bílaverkst. og síðustu fimm árin á lager. Síðan í Steiniðjunni, steypustöð kaupfélagsins og eftir það í Bílatanga til hausts ´99. Aldrei kallaður annað en Teddi.
Gunnar Th. (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 21:32
Heyrðu þá þekkir þú kannski mág minn hann Gunnar Þór Gunnarsson fæddur 63? Konan hans heitir Kolbrún. Ég held að Gunnar hafi einhvern tíman unnið í Vélsm. Þór, kannast ekki samt við þig en það klingja einhverjar bjöllur þegar ég hugsa um nafnið Teddi. Best að hunskast í háttinn er á leið suður í nótt , hafðu það gott.
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir, 27.7.2008 kl. 22:56
Jú, við Gunnar unnum hjá Þór á sama tíma, allt til loka. Síðast þegar ég vissi var hann vel geymdur hjá O.V. Við þekkjumst vel.
Gunnar Th. (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 23:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.