Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
29.11.2010 | 21:24
Marengs og slátur :)
Jæja marengsinn slapp ekki alveg í gær VARÐ svolítið dökkur enda var hann klukkutíma lengur inni í ofninum en samt ókey, held að ég hafi nú ekki mikla list á honum vegna þess að húsið angar ennþá af kóngabrjóstsykri sem ég setti í marengsinn hahahaha langar ekkert til að smakka hann . Eldaði heimagerða lifrapylsu og rúsínuslátur, í ekta vömbum í kvöld jammi með því besta sem við fáum. Gerði 20 keppi af lifrapylsu og 20 af rúsínuslátri í haust, þetta verður fljótt að klárast verð greinilega að gera meira næsta haust .
28.11.2010 | 20:48
Bakstur og klúður :)
Bakaði fjórfalda uppskrift af rúsínukökum (haframjölskökum) hálfa af vanilluhringjum og hálfa af kókoshringjum í gær, geymdi ískökurnar (loftkökur) þangað til í dag og auðvitað klúðraði ég tvöfaldri uppskrift, það var bara sykurbragð af þeim áttaði mig ekki á að kakóið sem ég notaði var of ljóst svo að ég varð bara að bretta upp ermar og byrja aftur fór ásjoppuna og keypti þrjá pakka af flórsykri, pakka af kakói (dökku ) og einn brjóstsykurspoka og þetta kostaði litlar átjánhundruð og eitthvað krónur en ok þessar kökur tókust ljómandi vel, ískökubragð af þeim . Nú er ég að baka marengsbotna með muldum kóngabrjóstsykri, gaman að vita hvernig það kemur út .
Færsluflokkar
Tenglar
Bloggarar
Hin síðan mín
Ýmsar vefslóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar