Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
10.7.2013 | 17:07
Kertakrukkurnar mínar :)
9.7.2013 | 22:59
Fjallagrös
Jæja þá er ég búin að skreppa upp til fjalla og tína fjallagrös sem eru til sölu :) mikið ódýrari en út úr búð :) Áhugasamir geta sent mér tölvupóst ghb3@internet.is eða bara hringt í síma 866-5309 :) Nú er bara um að gera að búa sér til fjallagrasaseiði eða fjallagrasamjólk, eru ekki annars allir að hugsa um heilsuna í dag ;)
22.6.2013 | 16:02
Dömuhúfur til sölu
22.6.2013 | 11:39
Kjóll til sölu
22.6.2013 | 01:32
Hekl :)
Halló halló.
Er að hekla á fullu og sel í Koltru á Þingeyri og líka á facebook síðunni minni, heklsíða Guðrúnar.
Er að hugsa um að setja nokkrar myndir hér inn við tækifæri :) Endilega lítið inn á facebook á síðuna Heklsíða Guðrúnar :)
Kv, Guðrún.
27.5.2012 | 12:58
Slefsmekkir til sölu.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2010 | 19:45
Jóla, jóla,jóla, það eru að koma jól :)
Búin að baka níu sortir af smákökum, tvær Daim tertur, eina ostatertu og eina ístertu, já og jólaísinn auðvitað og búin að skreyta hann líka. 'A Þorláksmessu set ég á brauðbotn og brauðtertu . Mér leiðist þessi rigning það þar alltaf að fara að rigna rétt fyrir jólin þoli það ekki vil nefnilega hvít jól, ég vil að það byrji að snjóa á Þorláksmessu þá kemst ég í þvílíkt jólaskap. Mig hlakkar svo agalega til á Þorláksmessu morgun þá fer ég norður á Ísafjörð og næ í Bjarneyju mína og tengdason sem eru að koma og vera hjá okkur Hannesi yfir blájólin .
29.11.2010 | 21:24
Marengs og slátur :)
Jæja marengsinn slapp ekki alveg í gær VARÐ svolítið dökkur enda var hann klukkutíma lengur inni í ofninum en samt ókey, held að ég hafi nú ekki mikla list á honum vegna þess að húsið angar ennþá af kóngabrjóstsykri sem ég setti í marengsinn hahahaha langar ekkert til að smakka hann . Eldaði heimagerða lifrapylsu og rúsínuslátur, í ekta vömbum í kvöld jammi með því besta sem við fáum. Gerði 20 keppi af lifrapylsu og 20 af rúsínuslátri í haust, þetta verður fljótt að klárast verð greinilega að gera meira næsta haust .
28.11.2010 | 20:48
Bakstur og klúður :)
Bakaði fjórfalda uppskrift af rúsínukökum (haframjölskökum) hálfa af vanilluhringjum og hálfa af kókoshringjum í gær, geymdi ískökurnar (loftkökur) þangað til í dag og auðvitað klúðraði ég tvöfaldri uppskrift, það var bara sykurbragð af þeim áttaði mig ekki á að kakóið sem ég notaði var of ljóst svo að ég varð bara að bretta upp ermar og byrja aftur fór ásjoppuna og keypti þrjá pakka af flórsykri, pakka af kakói (dökku ) og einn brjóstsykurspoka og þetta kostaði litlar átjánhundruð og eitthvað krónur en ok þessar kökur tókust ljómandi vel, ískökubragð af þeim . Nú er ég að baka marengsbotna með muldum kóngabrjóstsykri, gaman að vita hvernig það kemur út .
31.12.2009 | 15:14
Gleðilegt ár.
Færsluflokkar
Tenglar
Bloggarar
Hin síðan mín
Ýmsar vefslóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar