Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Kaupið bleiku slaufuna

     Bleika slaufan 2008    

Hvet alla til að taka vel á móti sölufólkinu og kaupa bleiku slaufuna til þess að það sé hægt að ljúka kaupunum á stafrænu röntgentækjunum, það ætla ég að minnsta kosti að gera.


mbl.is Bleika slaufan í sölu á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sofna undir stýri?

Svakalegt þegar fólk er að sofna undir stýri. Ung stúlka í kringum tvítugsaldur var á leið til Ísafjarðar í sumar frá Patreksfirði og var komin í Dýrafjörðinn þegar hún sofnaði undir stýri og bíllinn útaf og endastakkst niðrí fjöru, furðulegt að hún skildi komast lifandi frá þessu (sá bílinn), meiddist ekki alvarlega eða svo er að minnst kosti sagt, hef ekkert frétt meira af þessu slysi.
mbl.is Sofnaði undir stýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílík hetja....

Ef einhver á skilið orðu þá er það þessi maður sem með snarræði sínu vann þessa miklu hetjudáð.
mbl.is Gaskútur sprakk í bifreið - vegfarandi vann hetjudáð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með þeim bestu...

Sorglegt að þessi frábæri leikari sé farinn yfir móðuna miklu en þannig fer víst fyrir okkur öllum að lokum, ég hélt mikið upp á þennan leikara. Ein af uppáhaldsmyndunum mínum er "Butch Cassidy and the Sundance Kid", hreint út frábær.
mbl.is Paul Newman látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir eru bestir.....

Fylgdist með leiknum á mbl.is, hreinlega tapaði mér yfir honum....þetta geta drengirnir Smile.Ég verð greinilega að fá áskrift af SÝN Woundering.
mbl.is Torres skaut Liverpool á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halló!!! sofandi???

Flest má nú fólk eiga von á, að flugmenn taki sér bara lúr í háloftunum eins og ekkert sé?Angry Hvar er ábyrgðin hjá t.d. þessum tveimur mönnum? Woundering kannski ekkert skrítið öll þessi óhöpp á undanförnum árum. Hef verið flughrædd alla mína tíð þangað til í mars á þessu ári og svo fær maður svona fréttir Frown.
mbl.is „Þetta er flugmaðurinn sem sefur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rigning og aftur rigning

Það er víst ekkert hægt að gera í þessu nem þá að halda sig innandyra eða gera eins og tvítug dóttir mín, hún skellti sér í "grænan pollagalla handa fullorðnum" LoL og græn vaðstígvél og einhverja pottlokshúfu á höfuðið LoL, ég sprakk úr hlátri þegar hún kom í heimsókn til mín í vinnuna svona til fara, en auðvitað var þetta rétt af henni, henni leið bara vel þegar hún var að spóka sig úti í rigningunni Smile. Bara allir að skella sér í pollagallana.
mbl.is Það rignir og rignir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innbrotsþjófur með lítið hjarta

Þetta hefur verið slæm lífsreynsla hjá aumingja konunni, en sem betur fer var blessaður innbrotsþjófurinn með lítið hjarta, þetta hefði geta farið illa.
mbl.is Fékk innbrotsþjóf inn á gafl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjandinn sjálfur

Alveg er ég viss um að bensínið hækkar, er ekki hægt að gera eitthvað í þessu Angry ????? Jæja, kannski að ég fái mér bara hest Woundering  ?????
mbl.is Methækkun á olíuverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauðhærð börn í beitu!!!!

Mér er svo minnisstætt að þegar ég var lítil stúlka þá komu bresku togararnir inn á Þingeyri til að taka vistir og að láta lagfæra ýmislegt í smiðjunni á staðnum. Ég veit nú ekki hver fann upp á því að hræða börnin með því að bretarnir stælu rauðhærðum börnum og notuðu þau í beitu, allavegana tók ég á mig stórann krók til að fara í búð fyrir hana mömmu mína ég var svo skelfingu lostin Frown af því að það vill svo til að ég var rauðhærð sem barn Smile.


mbl.is Hópslagsmál á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Meira um mig

Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir

Ég á heima á Þingeyrinni fögru við Dýrafjörðinn fagra . Hin síðan mín. http://betri-heilsa.bloggar.is

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 538

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband